Öfugt

 Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, harmaði í morgun á fundi með Joe Biden, varaforseta Bandaríkjanna, að ísraelsk stjórnvöld skyldu í vikunni hafa tilkynnt um áform um að reisa 1600 ný hús fyrir gyðinga í Austur-Jerúsalem.

Bíddu á þetta ekki að vera öfugt.

Ætti þetta ekki að vera:

Joe Biden, varaforseta Bandaríkjanna, harmaði í morgun á fundi með Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, að ísraelsk stjórnvöld skyldu í vikunni hafa tilkynnt um áform um að reisa 1600 ný hús fyrir gyðinga í Austur-Jerúsalem.

 

Samkvæmt sjónvarpsfréttinni harmar Joe Biden þetta. Það væri skrýtið að forsetisráðherran harmaði eigin áform.


mbl.is Harmar tilkynningu um nýja gyðingabyggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lottó

Ég finn ekki linkinn þar sem ég las að einn af hverjum 100.000 fái alvarlegan taugasjúkdóm sem nefnist Guillain Barre heilkenni. Það þýðir að þú ert líklegri að fá þennan taugasjúkdóm við bólusetningu en að vinna stóra vinningin í lottó: http://agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/610884/
mbl.is Tafir á bólusetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvífarar

Ég man ekki betur en að ég hafi lesið þessa sömu frétt í gær með annara fyrirsögn. Já mikið rétt. Greinin "Heimsóttu kynlífsbúð í Hollywood" var ekki nógu áberandi. Ég vona að ég fái heiðurinn að lesa þriðju útgáfuna af sömu fréttinni.

Þeim hefur þó greinilega tekið ættlunarverk sitt. Ef tilgangur þeirra væri einhver annar en sá að koma af stað fjölmiðla fári, hefðu þau pantað þetta á netinu eins og hitt fræga fólkið . Frægðin er greinilega betri en við höldum, í það minnsta fyir athyglissjúkt fólk sem eltir Paparazzana í staðin fyir að vera ellt.

Svo efast ég líka um að þau muni nota öll þessi tæki og tól. Myndi Victoria ekki detta í sundur ef Beckham myndi slá hana með leðursvipu.

Svona er Hollywood skrýtin. Og við að fylgjast með þeim og mbl.is er nú orðin heldur spennt í þessu að neyða á okkkur tvem greinum af hverjum hlut sem gerist þarna. Fuss

Kv. Sigursteinn


mbl.is Kaupa krassandi kynlífstæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obboh bobb

Blair Witch Project var ekki heimildarmynd! Endirgreiðið bíómiðana og skammið kvikmyndagerðamenninna!
Ó nei!
Annars skil ég ekki af hverju þeir eru að innkalla bókina. Hvaða máli skiptir hvort bókin er minning eða skáldsaga? Er hún verri fyrir vikið.
Vitlausir útgefendur, vitlaus höfundur og vitlaus systir.
Af hverju gaf höfundur bókina ekki út sem skáldsögu byggða á sönnum atburðum.
Af hverju sagði hún ekki útgefendum frá þessu og þá hefðu þau getað notað þetta sem markaðs"trikk" í sameiningu. Og af hverju var systirin að kjafta frá systur sinni og eyðileggja feril hennar og framtíðarlukku?
Puff...

Kveðja,
Sigursteinn


mbl.is Upp komast svik um síðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Áframhaldandi þróun mannsins"

Ég hef mínar efasemdir um að maðurinn þróist meira sem lífvera. Við erum búin að útrýma náttúruvali með því að halda öllum á lífi eins lengi og við getum. Einu skiptin sem við mennirnir "náttúruveljum" er þegar einhver öðruvísi fæðist.

Hinsvegar erum við vonandi að þróast sem samfélag og tölvuvæðingin og hið huglæga gætu verið þau skref þróunnar sem við erum að taka.

 

Kveðja,

Sigursteinn 


mbl.is Nýju ljósi varpað á þróun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Besta leiðin til að græða peninga eru trúarbrögð"

Ég skil ekki hvers vegna fólk aðhyllist Vísindakirkjuna. Ef maður eyðir nokkrum mínútum í það að skoða trúarbrögðunum á netinu kemst maður að frekar ógnvekjandi hlutum um kirkjuna.

Aðeins það að kynna sér stofnanda kirkjunnar L. Ron Hubbard varpar dökkum skugga á hana.

L. Ron Hubbard var vísindaskáldsagnahöfundur og opíum fíkill.  Í opinberum skjölum Vísindakirkjunnar er honum lýst sem stríðshetju sem hlaut mörg verðlaun fyrir þjónustu sína við Bandaríkjaher í seinni heimstyrjöldinni. Hinsvegar er rauninn að allt sem hann tókst á við mistókst honum hrapalega. Sem dæmi má nefna þegar hann var yfir kafbát undan ströndum Bandaríkjanna.  Honum hafði verið sagt að koma í höfn vegna mistaka sem hann hafði gert (hann háði tveggja daga orrustu við ímyndaða kafbáta) þá ákvað hann að það væri tími fyrir skotæfingar. Hann framkvæmdi sínar skotæfingar á mexikanskri eyju þar sem bjó fólk og vegna kvartanna frá Mexikóskum yfirvöldum og því að hann kom ekki í höfn þegar honum var skipað það var hann leystur frá störfum.

Helsta ástæða Hubbards fyrir stofnun kirkjunnar voru peningar og eftirfarandi hefur verið haft eftir honum.

    "Make money. Make more money. Make other people make money."

(Græddu peninga. Græddu meiri peninga. Láttu aðra græða peninga. )

 - L. Ron Hubbard
 

    "Writing for a penny a word is ridiculous. If a man really wanted to make a million dollars, the best way to do it would be start his own religion."

(Að fá krónu fyrir hvert orð sem maður skrifar er fáránlegt. Ef að maður ætlaði sér að græða milljónir þá væri besta leiðin að stofna þitt eigið trúarbragð. )

 - L. Ron Hubbard

     "You don't get rich writing science fiction. If you want to get rich, you start a religion."

(Þú verður ekki ríkur á því að skrifa vísindaskáldsögur. Ef þú vilt verða ríkur þá ættir þú að stofna trúarbragð.) 

 - L. Ron Hubbard

Þannig að þótt þeir gefi fólki persónuleikapróf þá er það aðeins afsláttarmiði til að fá þig til að versla meira við þá. 

En ég ætti ekki að setja meira út á þá vegna annars sem hann Ron sagði og við getum séð í verki í dag:

     " We are slowly and carefully teaching the unholy a lesson. It is as follows: We are not a law enforcement agency. BUT we will become interested in the crimes of people who seek to stop us. If you oppose scientology we promptly look up - and find and expose - your crimes. If you leave us alone we will leave you alone.

      It's very simple. Even a fool can grasp that.

      And don't underrate our ability to carry it out." 

(Við erum hægt og vandlega að kenna óheilaga lexíu. Hún er þessi: Við erum ekki löggæsla. EN við munum verða áhugasöm um þá sem leitast til við að stöðva okkur. Ef þú stendur gegn Vísindakirkjunni munum við grafa upp, finna og upplýsa glæpi þína. Ef þú lætur okkur í friði látum við þig í friði.

    Þetta er mjög einfalt. Jafnvel hálfviti skilur þetta.

    Og ekki vanmeta hæfileika okkar til að standa við þetta. 

 - L. Ron Hubbard

Þeir eru víst mjög duglegir að standa við þetta eins og heyra má frá John Sweeney hjá BBC: http://news.bbc.co.uk/2/hi/programmes/panorama/6655207.stm 

 Áfram mætti lengi telja en ég læt staðar numist hér. Ég mæli þó eindregið með því að þið kynnið ykkur meira, svo sem Geimveruhershöfðinginn Xenu og gylltu Boeing þoturnar hans.

Heimildir og meira efni til að skoða: 

http://www.xenu.net/

http://www.scientology-lies.com/

http://en.wikipedia.org/wiki/L._Ron_Hubbard

 

Takk og lifið vel,

Sigursteinn 

 

 


mbl.is Will Smith á snærum Vísindakirkjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árhundruðirhundraðhunda

Hér sit ég 18 ára gamall á nýju ári.
Gamla árið var gott.
Ég sannfærðist um tilveru geimvera og nánast um tilveru æðri máttar.
Reyndar ég ég nokkuð viss um máttinn, bara ekki mynd hans.
Ég er handviss um að eitthvað meira en lítið skrítið var á seiði í bandaríkjunum 11 september.
Ég hoppaði fram og til baka á milli því að halda að Global Warming væri okkur eða stóra, heita, bjarta hnettinum sem er líklega ekki það stöðugur að við getum reytt okkur á að hann sé alltaf jafn heitur að kenna og ákvað að lokum að að hætta að hugsa um það.
Ég ákvað að trúa ekki á sköpunarsögu biblíunnar en kannski tekst Jakobi að breyta skoðun minni.
Ég held að ég hafi þroskast mikið á árinu, andlega meina ég þá, og ég vil þakka Jóni Bjarka, Guðjóni og fleirum fyrir upplýsandi og góðar samræður í sumar.
Ekki búast við miklu af þessu bloggi því að ég gæti verið með fordóma gegn bloggi og er ekki áreiðanlegur í að halda áfram hlutum sem ég byrja á.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband